Detti nú af mér allar dauðar sem lifandi lýs...

Erum við að tala um það að glæpamenn sem sitja bak við lás og slá í fangelsum landsins eigi rétt á:
TANNLÆKNAÞJÓNUSTU !!!
AÐSTOÐ VIÐ KAUP Á GLERAUGUM !!!

Ég er að gera við eina tönn sem brotnaði.
Það mun kosta á bilinu 260 - 280.000 íslenskar fokking krónur.
Hefði verið betra fyrir mig að brjóta af mér bíða í 5-6 ár þangað til ég fengi að afplána og láta hið opinbera greiða reikninginn?

Hvaða helvítis bull er það að glæpalýður þessa lands eigi rétt á styrk frá félagsmálayfirvöldum?
Þetta er það sem fyrst á að skera niður í kreppunni.

GLÆPAMENN eiga ekki að geta gengið að styrkjum innan opinbera kerfisins sem vísum að mínu mati.
Þeir eiga að vinna meðan þeir eru að afplána og ríkið á að fá þá framlegð sem úr því kemur.

Mér er svo slétt sama hvort þeir sjái vel eða illa.
Það er fullt af fólki LÖGHLÝÐNU fólki sem frestar tannlækntímum og augnlæknatímum sín og barna sinna vegna þess að fjárskortur hindrar það í því.
Munið hvernig það var snemmsumar þegar Tannlæknafélagið var með opna daga á laugardögum fyrir börn.

Ætli það sé kannski sama lögmál sem gildir þar eins og Davíð Oddson vildi meina að ætti við hjá góðum samtökum sem gáfu mat.
" þar sem er frír matur er að sjálfsögðu fólk til að þiggja hann" "þa er í mannlegu eðli að þiggja það sem er frítt"

Sat lengi í morgun í pottinum og spjallaði við einn af okkar fremstu rithöfundum.
Breytir því ekki að mér finnst að listamannalaun eigi að skera niður.

Hvernig stendur á því að ríkisstarfsmenn voru ekki skertir í launum strax í kjölfar hrunsins um segjum 10%.
Voru laun almennings og sveitarfélaga ekki skert?


mbl.is Akureyrarbær braut á fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkisstarfsmenn hafa flestir ef ekki allir tekið á sig einhverja skerðingu. Hafa svo sem ekki verið öfundsverðir í gegnum tíðina af launum(svona þessir almennu, ekki milljónatopparnir).

karl (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 14:48

2 identicon

Ég er svo hjartanlega sammála þér. Glæpamenn virðast alltaf öðlast hellings réttindi þegar þeir sitja inni og svo er afsökunin alltaf: Það er nú meira en að segja það að sitja í fangelsi. Án efa er það erfitt en..............

.........málið er, ekki brjóta af þér ef það er svona erfitt að sitja í fangelsi og höfum við ekki meira með peningana að gera en að borga allt mögulegt fyrir glæpahyskið þegar heiðarlegt fólk fær ekki eina krónu til að standa staum af kostnaði fyrir sama hlut.

Sigrún (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband